Afsakið innilega
bloggleysið .... vill eikker bjóða sig fram í að koma heim
til mín og fiksa helv. netið ? 
Og ég auglýsi líka hér
með svona meðan ég man eftir vinum sem búa hérna í bænum og munu þá
NENNA að koma í heimsókn til mín eða hitta mig á kaffihúsi eða
whatever..... já mér er búið að LEIÐAST!
Er OFT búin að hringja
í ákv vini sem eru bara ekkert að standa sig, alldrei tíma fyrir
lóu sín, og eins og ég er nú skemmtileg!
Pifff............
Er bara svo einmanna núna
og vil ekki vera einmanna, ég er félagsvera og þarf að hafa nóg að
gera í kringum mig! Þess vegna eru tvær helgar búnar að bjarga mér,
fékk dágóða næturgesti til mín af vestan, fyrst kom lubbsa, svo hún
sigga mín! úff hvað þetta voru skemmtilegar helgar, GAMAN!

Það verður nú að
viðurkennast að ég er búin að vera svolítið dugleg á djamminu
undanfarið eftir að ég gerðist kona einsömul, en það er líka bara
nauðsynlegt að sletta stundum úr klaunum! Veit fátt betra en að fá
sér ískalt hvítvín, jafnvel bjór, skella sér niðrí miðbæ
reykjavíkur og dansa eins og enginn sé morgundagurinn á sólon, til
dæmis! Þar vil ég helst vera .....
En um helgina var bara
ógissla gaman......á fimmtudeginum fórum við Sigga niðrí bæ á sólon
og sátum þar og kjöftuðum eins og okkur er nú lagið! Föstudagurinn
var líka bara æði, teiti og miðbærinn fram í rauðan dauðan......
kom heim um sjö leitið minnir mig
Og á laugardeginum var afmæli
hjöddu frænku á vínbarnum, og þar fuku nokkru hvítvínsglösin ofan í
mig og eftir það var svo bærinn enn og aftur, bara mjööög
skemmtilegt kvöld, samt rólegri en föstudagurinn, þó svo að ég fór
ekki að sofa fyrr en um átta um morgunin!
Spurning að taka
núkomandi helgi bara rólega, fara uppá skaga og borða mömmumat og
knúsa alla þar..... pabbi kom að heimsækja mig í gær og sagðist
bara vera liggurvið búinn að gleyma hvernig ég leit út!

En á sunnudaginn, mánudag
og gær var míns bara LASIN!
Ojjjj kvef kvef kvef....hálsbólga,
höfuðverkur, þið vitið, eflaust önnur hver manneskja með þessa
flensu núna! hélt að þetta væri djamminu að kenna þar sem ég
vaknaði með viskírödd á sunnudaginn, en svo var mér mikill léttir
þegar læknirinn sagði að svo var ekki, bara flensa!
Þurfti að fá
svona astma-úða til að losna við þetta slím-ógeð! Og það er bara að
svínvirka!!!!
Svo er verknámið mitt
byrjað og er ég uppá landspítala á 32C, sem er geðdeild, mjög
spennó tímar þar framundan! Lýst bara rosalega vel á
þetta.......
Þið sem hafið ekki séð
mig eða heyrt frá mér lengi, ég er bara eins ennþá
nema 4 kíló
farin af spiki og orðin blondína aftur.... keypti mér líka sjúklega
flotta peysu í 17 svona til að monta mig, langt síðan ég keypti mér
sjúklega flotta peysu
hehehhe .....
Framundan stefni ég á að
koma internetinu í lag hjá mér, svo ég komist í samband við
umheiminn aftur og hætti að vera svona einmanna í íbúðinni minni,
skrýtið að búa svona einn by the way! Gaman að eiga samt
fataskápinn bara fyrir sig! HoHo .... Svo bara að halda ótrauður
áfram í kick-boxinu og kýla alla djöfla mína kalda...... Læra,
dugleg í skólanum og vinnunni, og bara já, taka einn dag í einu og
vera ógissla dúleg stelpa! lýst ykkur ekki bara vel á
það?
Komments plz á einmanna stelpuna
sem skilar kveðju til allra, blogga meira SOON og þá vil ég vera
búin að fá helling af ógissla skemmtilegum kommentum!